Fotbolti.net
27.08.26 - 07:49
Elvar Geir Magnússon

Slagsmál eftir leik og ráðist á Guendouzi

Matteo Guendouzi er 27 ára.

Matteo Guendouzi er 27 ára.

Canon

Mynd: EPA

Tyrkneska liðið Fenerbahce er komið í Meistaradeildina en liðið hafði betur gegn Lyon í Frakklandi, 2-1, og vann einvígið samanlagt 3-2. Það var mikill hiti meðan á leik stóð og allt sauð upp úr eftir hann.

Stormurinn var í kringum Matteo Guendouzi, franskan miðjumann Fenerbahce, en hann er fyrrum leikmaður erkifjendanna í Marseille og er ekki vinsæll meðal stuðningsmanna Lyon.

Guendouzi fékk að heyra það úr stúkunni allan leikinn, það var baulað á hann og sjálfur segir hann að mjög ljót orð hafi verið látin falla um sig og sína nánustu. Guendouzi svaraði meðal annars með því að sýna áhorfendum miðfingurinn og eftir sigur Fenerbahce fagnaði hann ákaft fyrir framan stúkuna.
Aðili úr starfsliði Lyon missti stjórn á sér vegna fagnaðarláta Guendouzi og reyndi að ráðast á hann eftir leik. Samkvæmt frönskum fjölmiðlum er um að ræða markvarðaþjálfarann Antonio Ferreira.

Allt sauð upp úr í göngunum eftir leikinn, högg voru látin falla og á myndbandsupptökum má sjá öryggisverði eiga fullt í fangi með að reyna að halda aftur af leikmönnum og starfsmönnum.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.