Fotbolti.net
27.08.26 - 11:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Staðfestir að Marmoush sé á förum

Maresca er á leið til Tottenham.

Maresca er á leið til Tottenham.

Canon

Mynd: EPA

„Ég held að Omar sé á förum. Ekekrt er klárt á þessum tímapunkti. Við bíðum eftir því, en Nico Gonzalez er farinn, Savio fór og Omar er mjög líklega að fara líka," sagði Enzo Maresca, stjóri Man City, á fréttamannafundi í dag.

Omar Marmoush er á förum til Tottenham, fer á láni og í kjölfarið klárar Tottenham kaup á honum.
Maresca var spurður hvort hann þyrfti að fá inn reynslu inn á miðsvæðið fyrir gluggalok.

„Þetta snýst ekki um reynslumikla leikmenn. Ég hef sagt áður að aldur hvorki opnar né lokar neinum dyrum. Þetta snýst um gæði."

„Hjá Chelsea vorum við með yngsta hópinn í sögu úrvalsdeildarinnar og núna erum við með nokkuð ungan hóp, en erum með leikmenn sem búa yfir réttu reynslunni."


Tottenham mun greiða City 50 milljónir punda fyrir egypska sóknarmanninn Marmoush (1999) og sú upphæð getur hækkað um tíu milljónir punda til viðbótar út frá bónusgreiðslum. Marmoush kom til City í janúar 2025 frá Eintracht Frankfurt á 59 milljónir punda. Marmoush skoraði 16 mörk í 62 leikjum með City.

City á leik gegn Crystal Palace annað kvöld í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Maresca horfir ekki í adurinn heldur gæðin.

Maresca horfir ekki í adurinn heldur gæðin.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.