Fotbolti.net
27.08.26 - 11:40
Albert Guðmundsson

Stjörnulið vikunnar í Fantasy - Hjálmar Örn Jóhannsson

Taktu þátt í fantasy deild 38 umferða og fótbolta.net - Kóðinn er 10k1ov

38 umferðir er nýtt hlaðvarp sem fjallar um draumaliðsleik enska boltans

38 umferðir er nýtt hlaðvarp sem fjallar um draumaliðsleik enska boltans

Canon

Mynd: Albert Guðmundsson

Nýr þáttur af 38 umferðum kom út í vikunni en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.

Strákarnir taka fyrir eitt stjörnulið í hverjum þætti og í þessar viku var það Hjálmar Örn Jóhannsson, betur þekktur sem Hjammi, sem var tekinn fyrir.

Hjammi er þaulreyndur Fantasy spilari og hann kom andstæðingum sínum á óvart með óvenjulegu vali á Brighton leikmanni.
Hjammi átti tíðindalitla fyrstu umferð fyrir utan einn mann sem var Hinshelwood, 6.0m miðjumaður Brighton. Hann skoraði tvö mörk og skilaði 16 stigum í hús fyrir Hjamma.

Liðið hans Hjamma var eftirfarandi:

Markvörður
Kinsky (2)

Varnarmenn
Maguire (1), O'Reilly (2), Lacroix (6)

Miðjumenn
Gibbs-White (2), Bobb (2), Wirtz (2), Hinshelwood (16)

Sóknarmenn
Pedro (11), Haaland C (4), Isak (2)

Eins og alþjóð veit er Hjammi mikill Tottenham aðdáandi en eini leikmaðurinn frá Spurs sem fékk traustið var Kinsky en uppskeran var rýr í fyrstu umferð, aðeins 2 stig.

Hjammi setti fyrirliðabandið á Haaland eins og margir aðrir spilarar en var óheppinn að Norðmaðurinn náði ekki að klára færin sín í leiknum.

Við óskum Hjamma góðs gengis í ár og minnum á Hjamma.net þættina á laugardagsmorgnum kl 10 þegar spilað er í ensku úrvalsdeildinni.

Við minnum á að allir þættir 38 umferða eru aðgengilegir í hljóði og mynd á hlaðvarpsveitu fótbolta.net sem og youtube.

Liðið hans Hjamma er tekið fyrir á mínútu 47:12.

Svona stillti Hjammi upp í fyrstu umferð í fantasy leiknum

Svona stillti Hjammi upp í fyrstu umferð í fantasy leiknum

Canon

Mynd: Albert Guðmundsson

Hjammi.net á laugardagsmorgun kl 10:00

Hjammi.net á laugardagsmorgun kl 10:00

Canon

Mynd: Hjammi.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.