27.09.26 - 16:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Besta deild kvenna: Hrikaleg úrslit fyrir FH - 16 ára með þrennu

Grindavík/Njarðvík lagði FH að velli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH er núna þremur stigum frá Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bríet Fjóla skoraði þrennu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík/Njarðvík lagði FH að velli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik er með pálmann í höndunum í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn eftir að FH tapaði 3-2 gegn Grindavík/Njarðvík í Bestu deild kvenna í dag.
Grindavík/Njarðvík hefur að engu að keppa eftir að hafa tryggt sig inn í efri hlutann, en þær tóku forystuna þegar Tinna Hrönn Einarsdóttir skoraði rétt fyrir leikhlé.

Markið kom á versta tíma fyrir FH sem fékk svo tvö mörk til viðbótar í andlitið í byrjun seinni hálfleiks. Staðan var allt í einu orðin 3-0 og leikmenn FH slegnar.
Hafrún Birna Helgadóttir minnkaði muninn fyrir FH á 59. mínútu og Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir minnkaði muninn enn frekar á 82. mínútu, en lengra komst Fimleikafélagið ekki og niðurstaðan 3-2 sigur heimakvenna í Grindavík/Njarðvík.
FH er því núna þremur stigum á eftir Breiðabliki þegar þrír leikir eru eftir. Breiðablik gæti því orðið Íslandsmeistari í næstu umferð ef FH misstígur sig aftur. Þessi lið mætast svo í lokaumferðinni. Grindavík/Njarðvík er í sjötta sæti með 25 stig.
Bríet Fjóla í ham
Í Laugardalnum vann Þróttur þá 5-1 sigur gegn Stjörnunni. Bríet Fjóla Bjarnadóttir, 16 ára gömul, var í banastuði og skoraði þrennu fyrir bikarmeistarana.
Bríet Fjóla kom Þrótti á bragðið á 21. mínútu og Katie Cousins bætti við öðru marki stuttu síðar. Bríet Fjóla var svo búin að ganga frá leiknum fyrir leikhlé.
Stjarnan minnkaði muninn á 59. mínútu en Bríet Fjóla fullkomnaði þrennu sína stuttu eftir það. Mist Funadóttir, sem hefur verið virkilega öflug, skoraði svo fimmta mark Þróttar.
Þróttur fer upp fyrir Stjörnuna í fjórða sæti deildarinnar með þessum sigri en bæði lið eru með 26 stig.
Þróttur R. 5 - 1 Stjarnan
1-0 Bríet Fjóla Bjarnadóttir ('21 )
2-0 Katherine Amanda Cousins ('24 )
3-0 Bríet Fjóla Bjarnadóttir ('39 )
3-1 Rósey Björgvinsdóttir ('59 , sjálfsmark)
4-1 Bríet Fjóla Bjarnadóttir ('63 )
5-1 Mist Funadóttir ('69 )
Lestu um leikinn
Grindavík/Njarðvík 3 - 2 FH
1-0 Tinna Hrönn Einarsdóttir ('43 )
2-0 Emma Nicole Phillips ('48 )
3-0 Emma Nicole Phillips ('49 )
3-1 Hafrún Birna Helgadóttir ('59 )
3-2 Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir ('82 )