27.09.26 - 17:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Ekki erfitt að vera fótboltamaður"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Endrick, framherji Real Madrid, hefur átt erfitt uppdráttar hjá spænska félaginu.
Hann gekk til liðs við félagið frá Palmeiras árið 2024 þá 18 ára að aldri. Hann spilaði 37 leiki og skoraði sjö mörk á sínu fyrsta tímabili. Hann kom aðeins við sögu í þremur leikjum á síðasta tímabili og var lánaður til Lyon.

Þar kom hann að 16 mörkum í 21 leik. Hann var í viðtali hjá brasilíska miðlinum Ge Globo og sagði að það væru forréttindi að vera fótboltamaður.
„Það er ekki erfitt að vera fótboltamaður. Það er erfitt fyrir fólkið sem þarf að vakna klukkan fimm um morguninn til að fara í vinnu frá mánudegi til sunnudags. Fótbolti færir manni frábæra hluti," sagði Endrick.