27.09.26 - 15:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrsti sigur Man Utd hjá nýjum þjálfara

Eva Olid tók við Man Utd í sumar.

Mynd: Manchester United

Kvennalið Tottenham er að gera góða hluti.

Mynd: Tottenham - X

Eva Olid tók við Man Utd í sumar.

Mynd: Manchester United

Kvennalið Manchester United vann í dag sinn fyrsta sigur undir stjórn nýs þjálfara. Hin spænska Eva Olid tók við Man Utd í sumar og hefur hingað til ekki gengið vel; liðið hafði spilað þrjá deildarleiki fyrir leikinn gegn West Ham í dag og tapað tveimur þeirra á meðan hinn leikurinn endaði í jafntefli.
Hin norska Elisabeth Terland kom Man Utd yfir eftir níu mínútur í dag og var staðan 1-0 í hálfleik, en um miðbik seinni hálfleiks bætti Andrea Medina við öðru marki.
West Ham minnkaði muninn í uppbótartíma, en lokatölur voru 2-1 fyrir Man Utd. Sigurinn var heilt yfir sanngjarnt þó West Ham hafi pressað í lokin.
Man Utd er þá með fjögur stig eftir fjóra leiki á meðan West Ham er með þrjú stig.
Tottenham á góðu róli
Það eru þrír aðrir leikir búnir í ensku úrvalsdeildinni í dag og þar á meðal var nágrannaslagur Liverpool og Everton sem endaði með 2-0 sigri Liverpool. Beata Olsson kom Liverpool yfir á fjórðu mínútu og Cornelia Kapocs bætti við öðru marki í lokin, en þær eru báðar sænskar.
Liverpool er með sjö stig í fimmta sæti og Everton er með stigi minna. Crystal Palace og Birmingham skildu jöfn 3-3 og þá vann Tottenham 4-0 sigur á Aston Villa en Spurs hefur byrjað vel á þessu tímabili og er í öðru sæti á eftir Manchester City sem er með fullt hús stiga. Það er annað en karlaliðið hjá Tottenham sem situr á botni ensku úrvalsdeildarinnar í landsleikjahléinu.
Á eftir, klukkan 15:30, hefst svo stórleikur Chelsea og Arsenal á Stamford Bridge.