27.09.26 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Haaland ekki á fréttamannafundi

Erling Haaland.

Mynd: EPA

Stale Solbakken, landsliðsþjálfari Noregs.

Mynd: EPA

Erling Haaland.

Mynd: EPA
Markamaskínan Erling Haaland mætti ekki á blaðamannafund norska landsliðsins eins og til stóð eftir að Manchester City var fundið sekt um 114 brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar.
Stale Solbakken, landsliðsþjálfari Noregs, ákvað að Haaland skyldi sleppa við fundinn og einbeita sér þess í stað að komandi verkefnum með landsliðinu.

„Við viljum að hann einbeiti sér að leiknum og fái sem bestar aðstæður til þess. Þið vitið öll hvert umræðuefnið hefur verið síðustu 24 klukkustundirnar,“ sagði Solbakken en Noregur mætir Portúgal í kvöld.
Hann vísaði í blaðamannafund Rodri, leikmanns City, deginum áður þar sem Spánverjinn þurfti nánast eingöngu að svara spurningum um málið.
„Þess vegna finnst mér rétt að hann einbeiti sér að því sem hann á að gera, sem er að skora mörk fyrir Noreg. Ég held að við séum öll sammála um að það sé mikilvægast.“
Solbakken sagðist ekki hafa rætt sérstaklega við Haaland um málið en hefði engar áhyggjur af því að það myndi hafa áhrif á framherjann.
„Ég veit nákvæmlega jafn mikið eða lítið um þetta og þið,“ sagði hann jafnframt.