Fotbolti.net
27.09.26 - 16:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hvar stendur Arnar gagnvart öðrum landsliðsþjálfurum?

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari.

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar Gunnlaugsson stýrði Íslandi í 16. sinn í gær þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Eistland. Af þessum 16 leikjum hafa bara þrír leikir unnist og eru tveir þeirra gegn Aserbaídsjan sem situr í 125. sæti heimslistans.
Arnar: Myndi örugglega kjósa sjálfan mig í burtu eftir svona leik
TENGT EFNI

Arnar: Myndi örugglega kjósa sjálfan mig í burtu eftir svona leik

„Ég er mikill tölfræðigaur en að vinna þrjá leiki af 16 er alls ekki nægilega gott. Það er ekki flóknara en það," sagði Arnar á fréttamannafundi í gær.

„Svo geturðu farið í alls konar krúsídúllur og bent á það að við höfum spilað gegn Argentínu, tvisvar á móti Frökkum, Mexíkó og Kanada á útivelli. Núna erum við á heimavelli á móti Eistlandi og þetta eru klárlega mestu vonbrigðin hingað til af þessum leikjum. Leikirnir gegn Kosóvó voru byrjunin á einhverju nýju. Það er kannski hægt að fyrirgefa það. Kosóvó eru líka aðeins betri en mörgum grunar miðað við þeirra úrslit upp á síðkastið."

Leikir Arnars við stjórnvölinn:
Kosóvó (úti) - 2-1 tap
Kosóvó ("heima") - 1-3 tap
Skotland (úti) - 1-3 sigur
Norður-Írland (úti) - 1-0 tap
Aserbaídsjan (heima) - 5-0 sigur
Frakkland (úti) - 2-1 tap
Úkraína (heima) - 3-5 tap
Frakkland (heima) - 2-2 jafntefli
Aserbaídsjan (úti) - 0-2 sigur
Úkraína (úti) - 2-0 tap
Mexíkó (úti) - 4-0 tap
Kanada (úti) - 2-2 jafntefli
Haítí (hlutlaust) - 1-1 jafntefli
Japan (úti) - 1-0 tap
Argentína (hlutlaust) - 0-3 tap
Eistland (heima) - 1-1 jafntefli

Þetta eru þá þrír sigurleikir, fjögur jafntefli og níu töp. Markatalan er jafnframt 22:30. En hvernig er samanburðurinn við þá sem hafa stýrt íslenska landsliðinu síðustu ár? Tökum tíu síðustu landsliðsþjálfarana á undan Arnari.

Age Hareide - 7 sigrar í 19 leikjum (37% sigurhlutfall)
Arnar Þór Viðarsson - 8 sigrar í 31 leik (26% sigurhlutfall)
Erik Hamren - 9 sigrar í 27 leikjum (33% sigurhlutfall)
Heimir Hallgrímsson - 24 sigrar í 57 leikjum (42% sigurhlutfall
Lars Lagerback - 21 sigur í 51 leik (41% sigurhlutfall)
Ólafur Jóhannesson - 11 sigrar í 39 leikjum (28% sigurhlutfall)
Eyjólfur Sverrisson - 2 sigrar í 14 leikjum (14% sigurhlutfall)
Logi Ólafs og Ásgeir Sigurvins - 10 sigrar í 38 leikjum (26% sigurhlutfall)
Atli Eðvaldsson - 11 sigrar í 31 leik (36% sigurhlutfall)
Guðjón Þórðarson - 11 sigrar í 25 leikjum (44% sigurhlutfall)

Ef listanum er raðað eftir besta sigurhlutfallinu, þá er hann svona:

1. Guðjón Þórðarson - 44%
2. Heimir Hallgrímsson - 42%
3. Lars Lagerback - 41%
4. Age Hareide - 37%
5. Atli Eðvaldsson - 36%
6. Erik Hamren - 33%
7. Ólafur Jóhannesson - 28%
8-9. Ásgeir og Logi - 26%
8-9. Arnar Þór Viðarsson - 26%
10. Eyjólfur Sverrisson - 14%

Arnar Gunnlaugs skákar Eyjólfi Sverrissyni með rétt tæplega 19% sigurhlutfall, en aðrir eru fyrir ofan hann.

Auðvitað er hægt að tala um erfiðleikastig á leikjum og þess háttar, en framundan eru þrír leikir gegn Lúxemborg, Búlgaríu og Eistlandi. Algjört dauðafæri fyrir hann til að koma sér í betri stöðu á þessum lista, en hann fékk talsverða gagnrýni frá þjóðinni eftir 1-1 jafnteflið gegn Eistlandi í gær. Það er allavega ljóst að hann þarf að fara að sækja góð úrslit á næstunni.
Guðjón Þórðarson.

Guðjón Þórðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Lars og Heimir.

Lars og Heimir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjólfur Sverrisson vann 2 af 14 leikjum sínum sem landsliðsþjálfari. Honum gekk svo talsvert betur með U21 landsliðið.

Eyjólfur Sverrisson vann 2 af 14 leikjum sínum sem landsliðsþjálfari. Honum gekk svo talsvert betur með U21 landsliðið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr jafnteflinu gegn Eistlandi í gær.

Úr jafnteflinu gegn Eistlandi í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.