Fotbolti.net
27.09.26 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Isak dregur sig úr sænska landsliðshópnum

Alexander Isak.

Alexander Isak.

Canon

Mynd: EPA

Alexander Isak, sóknarmaður Liverpool, er farinn úr herbúðum sænska landsliðsins eftir aðeins einn leik.

Isak skoraði á föstudaginn þegar Svíar unnu 2-1 sigur gegn Rúmeníu í fyrsta leik liðsins í Þjóðadeildinni.
Í tilkynningu sænska fótboltasambandsins kemur fram að Isak sé að glíma við smávægileg meiðsli og geti þess vegna ekki tekið þátt í komandi leikjum.

Isak hefur farið vel af stað með Liverpool á tímabilinu eftir að hafa verið mikið meiddur á síðustu leiktíð. Það er vonandi fyrir Liverpool að þessi meiðsli séu ekki alvarleg.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.