27.09.26 - 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Karólína lagði upp í Íslendingaslag

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn á sem varamaður og Cecilía Rán Rúnarsdóttir var í markinu þegar Inter vann 2-0 sigur á Fiorentina í fyrstu umferð ítölsku deildarinnar.
Staðan var 1-0 þegar Karólína kom inn á 76. mínútu. Hún lagði upp annað markið í uppbótatíma. Katla Tryggvadóttir og Iris Ómarsdóttir komu inn á sem varamenn hjá Fiorentina.

Glódís Perla Viggósdóttir sat á bekknum þegar Bayern vann 2-1 endurkomusigur á Gladbach í þýska bikarnum. Bayern vann bikarinn á síðustu leiktíð en Gladbach spilar í B-deildinni.
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir var í byrjunarliði Leipzig sem vann 2-0 sigur á Marburg.
Hildur Antonsdóttir var í byrjunarliði Newcastle sem vann 4-0 sigur á Leicester í B-deildinni á Englandi. Newcastle er á toppnum með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir.
Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir kom inn á sem varamaður í 2-0 tapi FCK gegn Midtjylland í dönsku deildinni. FCK er með sex stig í 9. sæti eftir níu umferðir.
Hlín Eiríksdóttir kom inn á sem varamaður í 3-1 tapi Malmö gegn Brommapojkarna í sænsku deildinni. Malmö er í 3. sæti með 36 stig eftir 20 umferðir.