27.09.26 - 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mancini um City málið: Ekki mitt vandamál

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Man City var fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum á dögunum en brotin áttu sér stað á árunum 2009-2018.
Roberto Mancini, landsliðsþjálfari Ítalíu, var stjóri City frá 2009–2013. Hann hefur ekki áhyggjur af þessu máli.

„Ég tel að Manchester City hafi ekki verið dæmt sekt, heldur þvert á móti,“ sagði Mancini.
„Þetta er ekki vandamál sem veldur mér áhyggjum og þetta er ekkert nýtt. Manchester City er ekki sekt og með tvöfalda samningnum er þetta ekki mitt vandamál, heldur þeirra ef eitthvað er.“
Meðal ásakana eru svartar greiðslur til Mancini og annar samningur sem hefði meira en tvöfaldað laun hans. Sagt er að þessi samningur hafi verið aukasamningur við félag í Abú Dabí, einnig í eigu Sheikh Mansour, eiganda City, að verðmæti 2,03 milljóna evra fyrir að lágmarki fjögurra daga ráðgjafarvinnu á ári.