27.09.26 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Palace hafnaði Liverpool - „Þeir gátu ekki haldið að þetta myndi ganga upp"

Ismaila Sarr.

Mynd: EPA

Ismaila Sarr.

Mynd: EPA
Steve Parish, stjórnarformaður Crystal Palace, segir að Liverpool hafi aldrei átt raunhæfan möguleika á að fá Ismaila Sarr í sumar miðað við þá fjárhæð sem félagið bauð í Senegalann.
Sarr, sem er 28 ára, var eftirsóttur síðastliðið sumar og hafði samkvæmt fréttum áhuga á því að ganga til liðs við Liverpool. Galatasaray sýndi einnig áhuga.

Liverpool skoðaði möguleikann á að fá Sarr undir lok gluggans en Palace taldi tilboðið ekki nægilega hátt til að koma til greina.
„Með þeirri upphæð sem þeir buðu gátu þeir ekki í alvörunni haldið að þetta myndi ganga upp,“ sagði Parish í viðtali við The Athletic.
„Ef þú ert að selja leikmenn fyrir 90 milljónir punda og vilt svo bjóða okkur helminginn af því fyrir leikmann sem á að koma í staðinn, þá er það allt í lagi. Þú mátt alveg gera það. En það er ekki að fara að gerast.“
Eftir að Liverpool tókst ekki að landa Sarr ákvað félagið að lokum að stöðva 80 milljóna punda félagaskipti Cody Gakpo til Manchester City. Gakpo varð því áfram á Anfield þrátt fyrir áhuga City og Sarr var áfram hjá Palace.