Fotbolti.net
27.09.26 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Roy Keane um Palmer: Gleymdu hugmyndinni

Cole Palmer.

Cole Palmer.

Canon

Mynd: EPA

Roy Keane, fyrrum fyrirliði Manchester United, hefur gagnrýnt Cole Palmer harðlega og segir Chelsea-stjörnuna ekki vera leikmanninn sem geti tekið enska landsliðið upp á næsta stig.

Palmer var ekki með Englandi í 3-2 tapi gegn Spáni í Þjóðadeildinni í gær. Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari, hafði valið hann í hópinn en hann dró sig úr leikjunum vegna meiðsla.
„Mér líkar við Palmer, hann er hæfileikaríkur strákur, en að mínu mati er hann með allt of marga slæma vana í leik sínum," sagði Keane.

„Ég horfði á síðasta leik hans gegn Brentford. Ef þú heldur að hann muni taka England á næsta stig og vinna titla, þá skaltu gleyma því.“

Palmer, sem er 24 ára, var kallaður aftur inn í enska landsliðshópinn eftir að hafa verið skilinn eftir heima á HM síðasta sumar. Þetta er hins vegar í annað sinn sem Palmer dregur sig úr landsliðshópi eftir að Tuchel tók við Englandi árið 2025.

Fjarvera hans hefur vakið nokkra athygli þar sem hann spilaði allan leik Chelsea gegn Brentford aðeins viku áður en hann dró sig úr hópnum.
Roy Keane.

Roy Keane.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.