Fotbolti.net
27.09.26 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sindri Kristinn fagnaði sigri - Fyrsta tapið hjá Kristófer

Sindri Kristinn fagnaði sigri - Fyrsta tapið hjá Kristófer
Canon

Mynd: Vasalund

Sindri Kristinn Ólafsson var í markinu hjá Vasalund þegar liðið fagnaði 1-0 sigri á Gefle í sænsku C-deildinni. Liðið hafði ekki unnið í síðustu fimm leikjum á undan.

Liðið er í 12. sæti með 27 stig eftir 24 umferðir.
Óttar Magnús Karlsson spilaði allan leikinn þegar Renate tapaði 1-0 gegn Treviso í A riðli í ítölsku C-deildinni. Renate er á botninum með tvö stig eftir sjö umferðir.

Kristófer Jónsson spilaði allan leikinn þegar Reggiana tapaði 1-0 gegn Perugia í B riðli. Reggiana er í 4. sæti með 14 stig eftir sjö umferðir.

Sigurður Bjartur Hallsson kom inn á í uppbótatíma þegar AD Merida tapaði 5-3 gegn UD Logrones í spænsku C-deildinni. Merida er í 17. sæti með þrjú stig eftir fimm umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.