Fotbolti.net
27.09.26 - 12:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Skráður sem þriðji markvörður Írlands

Jimmy Dunne.

Jimmy Dunne.

Canon

Mynd: EPA

Jimmy Dunne, varnarmaður QPR á Englandi, er skráður sem þriðji markvörður Írlands fyrir leikinn gegn Ísrael í Þjóðadeildinni í kvöld.

Gavin Bazunu, markvörður írska landsliðsins, dró sig úr hópnum fyrir leikinn gegn Ísrael í gær.
Írar funduðu um stöðuna í gær og Bazunu ákvað að taka ekki þátt í leiknum. Hann sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Þar segir hann: „Ég er maður með sterka trú og reyni mitt besta til að vera maður með karakter og meginreglur, þess vegna finnst mér það rangt að taka þátt í komandi leikjum gegn Ísrael.“

Það hefur gengið á ýmsu á Írlandi síðustu mánuði, eða allt frá því að ljóst varð að liðið myndi mæta Ísrael í Þjóðadeildinni. Írar hafa tekið sterka afstöðu með Palestínu og hefur verið sterklega kallað eftir því að Írar mæti ekki til leiks í kvöld. Leikmenn kusu um það í gær og kaus meirihluti með því að spila leikinn. Heimir Hallgrímsson er landsliðsþjálfari Írlands.

Það eru bara tveir markverðir eftir í hópi Írlands og ekki tími til að kalla inn nýjan markvörð. Reglur UEFA kveða um að það þurfi að vera þrír markverðir í hópnum og því hafa Írar skráð Dunne sem þriðja markvörð sinn fyrir leikinn í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.