Fotbolti.net
27.09.26 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalski boltinn

Van Dijk til Ítalíu? - „Ekki nafn sem ég er að grípa úr lausu lofti"

Virgil van Dijk.

Virgil van Dijk.

Canon

Mynd: EPA

Virgil van Dijk gæti hugsanlega yfirgefið Liverpool næsta sumar og haldið til AC Milan samkvæmt ítölskum fjölmiðlamanni. Á sama tíma er Liverpool sagt hafa augastað á mögulegum arftaka hans.

Van Dijk, sem er 35 ára, verður samningslaus næsta sumar og enn hefur ekkert verið staðfest um framtíð hans hjá Liverpool. Hann hefur þó byrjað tímabilið vel og myndað sterkt miðvarðapar með hinum unga Jeremy Jacquet.
Carlo Pellegatti, þekktur blaðamaður á Ítalíu, fullyrðir að AC Milan hafi lengi haft áhuga á Van Dijk og að hann muni að endingu enda á San Siro.

<>„Ég held áfram að segja að Van Dijk muni koma til Milan fyrr eða síðar,“ sagði Pellegatti. Hann fullyrðir að Gerry Cardinale, eigandi Milan, sé staðráðinn í að fá Van Dijk.

„Ég get fullvissað ykkur um að þetta er ekki nafn sem ég er að grípa úr lausu lofti."

Liverpool er því þegar sagt vera farið að huga að lífinu eftir Van Dijk. Samkvæmt CaughtOffside hefur félagið áhuga á Micky van de Ven, miðverði Tottenham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.