27.09.26 - 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vonbetri um Haaland eftir fréttirnar af Man City

Er Haaland á förum frá Man City?

Mynd: EPA

Dani Olmo.

Mynd: EPA

Trent Alexander-Arnold.

Mynd: EPA

Balde er orðaður við Manchester United.

Mynd: EPA

Er Haaland á förum frá Man City?

Mynd: EPA

Við erum í löngu landsleikjahléi, en slúðrið stoppar ekkert. Hér er það helsta á þessum ágæta sunnudegi.
Bayern München er tilbúið að leggja fram 69 milljóna punda tilboð í Dani Olmo (28), sóknarmann Barcelona og spænska landsliðsins. (Sport)
Trent Alexander-Arnold (27), hægri bakvörður Real Madrid, íhugar ekki að yfirgefa félagið þrátt fyrir áhuga frá Arsenal og Liverpool. (TeamTalk)
Manchester United fylgist náið með Alejandro Balde (22), vinstri bakverði Barcelona, sem gæti yfirgefið katalónska félagið í janúar. (Mundo Deportivo)
Liverpool og Manchester United hafa bæði áhuga á Micky van de Ven (25), miðverði Tottenham. Það myndi þó kosta háa fjárhæð að fá Tottenham til að selja Hollendinginn. (CaughtOffside)
Fikayo Tomori (28), miðvörður, og Ruben Loftus-Cheek (30), miðjumaður, eru báðir á leið frá AC Milan næsta sumar. Samningar enska tvíeykisins renna út í júní. (Gazzetta dello Sport)
Bayern München hefur áhuga á Tomas Araujo (24), portúgölskum miðverði Benfica. (Bild)
Barcelona fylgist áfram náið með Erling Haaland (26), norska framherjanum hjá Manchester City. Barcelona vonast til þess að Haaland verði raunhæfara skotmark næsta sumar eftir að City var fundið sekt um brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. (El Nacional)
Roma hyggst tvöfalda verðmiðann á Manu Koné (25), franska miðjumanninum, í 86 milljónir punda fyrir janúargluggann. Chelsea hafnaði samkvæmt fréttum tækifæri til að kaupa Koné fyrir 43 milljónir punda síðasta sumar. (Gazzetta dello Sport)
Raul Asencio (23), miðvörður Real Madrid, fékk þrjú stór tilboð í sumar, þar á meðal frá Chelsea og Liverpool, en ákvað að vera áfram hjá Real Madrid. (Marca)
Bakvörðurinn Alex Jimenez (21) gekk til liðs við Fiorentina á láni frá Bournemouth í sumar. Í samningnum er kaupmöguleiki upp á 17 milljónir punda. (Tuttomercatoweb)