Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 27. október 2020 22:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Klopp um meiðsli Fabinho: Það síðasta sem við þurftum
Mynd: Getty Images
„Þetta er akkúrat það síðasta sem við þurftum á að halda," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, í viðtali eftir sigur Liverpool á Midtjylland í Meistaradeildinni.

Klopp var þarna að tala um meiðsli Fabinho sem meiddist eftir tæplega hálftíma leik. Fabinho fann tak aftan í læri og gat ekki haldið leik áfram.

„Það sem ég veit er að hann fann fyrir taki aftan í læri og það er ekki gott. Hann sagði að hann hefði getað haldið áfram en hefði ekki getað tekið neina spretti sem hefði ekki hjálpað okkur."

„Við sjáum til hvernig staðan verður. Við munum vita meira eftir frekari skoðun,"
sagði Klopp að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner