Liverpool hefur tækifæri á að skora mark númer tíu þúsund í sögu félagsins í kvöld þegar Midtjylland kemur í heimsókn á Anfield.
128 ár eru liðin síðan Jock Smith skoraði fyrsta mark Liverpool í 8-0 sigri Higher Walton í Lancashire deildinni.
Síðan þá hefur liverpool skorað 9998 mörk til viðbótar í mótsleikjum og í kvöld gæti mark númer tíu þúsund verið skorað.
Ian Rush hefur skorað flest mörk í sögu Liverpool en hann skoraði 346 mörk í mótsleikjum fyrir félagið á ferli sínum.
Leikur Liverpool og Midtjylland hefst á Anfield klukkan 20:00 í kvöld.
Athugasemdir