Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 27. október 2021 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gnabry segir Dembele mun betri heldur en Mbappe
Ousmane Dembele.
Ousmane Dembele.
Mynd: Getty Images
Serge Gnabry, kantmaður Bayern München, er á þeirri skoðun að Ousmane Dembele sé mun betri heldur en Kylian Mbappe.

Dembele er 24 ára gamall kantmaður sem er á mála hjá Barcelona. Hann var frábær fyrir Borussia Dortmund áður en hann fór til Katalóníu fyrir fjórum árum fyrir allt að 145 milljónir evra.

Hann hefur ekki náð að forðast meiðsli og ekki sýnt sínar bestu hliðar inn á fótboltavellinum.

Á meðan hefur Mbappe verið magnaður síðustu ár fyrir Paris Saint-Germain og franska landsliðið. Hinn 22 ára gamli Mbappe er af flestum talinn einn besti leikmaður í heimi þessa stundina.

Gnabry hefur samt meira álit á Dembele. „Dembele er miklu betri en Mbappe," sagði Gnabry þegar hann var að rökræða við liðsfélaga sína hjá Bayern í nýrri heimildarmynd fyrir Amazon.

Liðsfélagar hans, Joshua Kimmich og Thomas Müller, virtust ekki alveg sammála enda frekar erfitt að vera það í þessu tilviki.
Athugasemdir
banner
banner
banner