Fotbolti.net
27.10.26 - 12:45
Elvar Geir Magnússon

Carrick stýrir Man Utd áfram og fær tækifæri til að snúa genginu við

Þurfa að borga bætur til að fá Howe

MIchael Carrick fær tækifæri til að snúa genginu við og stýrir liðinu gegn Chelsea.

MIchael Carrick fær tækifæri til að snúa genginu við og stýrir liðinu gegn Chelsea.

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick mun stýra Manchester United í heimsókn þeirra til Chelsea um helgina. Heimildir breska ríkisútvarpsins BBC herma að hann fái tækifæri til að snúa stöðunni við á Old Trafford eftir slæma byrjun tímabilsins.

Carrick hafði umsjón með æfingu í morgun. Ekki er víst hvort önnur slæm úrslit gegn Chelsea geti haldið honum í starfinu.
Carrick: Ég hef reynt allt
TENGT EFNI

Carrick: Ég hef reynt allt

0-3 tapið gegn Bournemouth á Old Trafford á sunnudaginn setti framtíð Carrick í óvissu en United er einu sæti fyrir ofan fallsætið.

Það er sagt að stjórn United hafi kannað möguleika á því hverjir gætu tekið við af Carrick. Eddie Howe, fyrrum stjóri Newcastle, og Julian Nagelsmann sem hætti sem þjálfari Þýskalands eftir HM hafa verið skoðaðir.

Ef Carrick verður rekinn er sagt að Jason Wilcox, yfirmaður fótboltamála, vilji helst ráða Howe. Guardian segir að United þyrfti þá að borga Newcastle 3 milljónir punda í bætur samkvæmt skilmálum brottfarar hans frá St James' Park.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.