27.10.26
Hafnað af Arsenal, kolvitlausir spádómar og áhrifin frá Gylfa
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
„Work hard in silence. Let success be your noise.“
Á góðri íslensku má þýða þetta sem: „Leggðu vinnuna á þig í kyrrþey. Láttu árangurinn tala sínu máli." Harry Kane birti þessi orð á samfélagsmiðlum í gær eftir að hafa unnið Ballon d'Or-verðlaunin, stærstu einstaklingsverðlaunin í fótboltanum. Þessi orð eru kannski besta samantektin á ferli manns sem hefur ítrekað þurft að svara efasemdum, en lætur nú árangurinn tala sínu máli.
Átta ára gamall fékk Kane þau skilaboð hjá Arsenal að hann væri ekki nægilega góður. Árum síðar var efast um hann. Nú hefur hann náð hæsta tindinum þegar kemur að einstaklingsverðlaunum.
Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmaður Tottenham til margra ára, hefur fylgst með vegferð Kane frá því hann kom fyrst upp hjá Spurs. Hann rifjar upp hvernig vanmetinn unglingur varð einn besti framherji sinnar kynslóðar, hvers vegna vinnusemin og hugarfarið skiptu sköpum og hvernig Ballon d'Or-sigurinn hefur nú þaggað niður í mörgum röddum.