Fotbolti.net
27.10.26 - 15:19
Kári Snorrason

Hvað gerir Davíð Smári?

Samantekt

Sagði upp störfum hjá Njarðvík í dag.

Sagði upp störfum hjá Njarðvík í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Davíð Smári Lamude tilkynnti fyrr í dag um uppsögn sína hjá Njarðvík. Hann stýrði liðinu í eitt ár og endaði Njarðvík í 5. sæti Lengjudeildarinnar í sumar.

Liðið féll út í undanúrslitum umspilsins eftir spennandi einvígi gegn Þrótti sem fór í kjölfarið upp í Bestu deildina. Davíð hafði áður stýrt Vestra og Kórdrengjum við mjög svo góðan árangur.
Davíð Smári hættur í Njarðvík (Staðfest)
TENGT EFNI

Davíð Smári hættur í Njarðvík (Staðfest)

Fjórar stöður lausar og þrjár gætu losnað
Það er ljóst að stór biti var að losna og er þjálfarakapallinn farinn á fullt eftir að tímabilinu í Bestu deildinni lauk. Ef horft er í Bestu og Lengjudeildina eru fjórar lausar þjálfarastöður. Þá eru þrjár stöður í Lengjudeildinni sem gætu opnast.

Breiðablik tilkynnti í dag um viðskilnað sinn við Ólaf Inga Skúlason og þá var Lárus Orri Sigurðsson látinn fara frá Skaganum um helgina.

Í Lengjudeildinni er starfið hjá Gróttu laust eftir að Rúnar Páll Sigmundsson fór í Stjörnuna. Davíð Smári er eflaust ofarlega á blaði hjá Seltirningum sem enduðu í 7. sæti Lengjudeildarinnar í ár.

Þá er spurning með hvað KA gerir í þjálfaramálum í kjölfar fall liðsins. Hallgrímur Jónasson er með áframhaldandi samning en framtíð hans er engu að síður óljós. Eiður Smári Guðjohnsen skrifaði undir samning út tímabilið og væri hæpið að sjá hann halda áfram fyrir norðan.

Óvíst er hvernig þjálfaramál Eyjamanna verður á næsta tímabili en Aleksandar Linta er með áframhaldandi samning. Í kjölfar fall liðsins úr Bestu deildinni vildi hann þó ekki tjá sig í viðtölum um hvort að hann myndi halda áfram með liðið á næsta ári.

Þá gæti staðan hjá Fylki losnað skyldi Heimir Guðjónsson fara til ÍA eða Breiðabliks. Augljós kostur í það starf væri Fylkismaðurinn Ólafur Ingi Skúlason en Davíð Smári er jafnframt spennandi kostur.

Aron Baldvin Þórðarson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson hafa einnig verið orðaðir við starfið í Árbænum.

Donni norður?
Þá hætti Halldór Geir Heiðarsson, oftast kallaður Donni, sem aðstoðarþjálfari Njarðvíkur. Hann er ættaður frá Húsavík og hefur félagið samkvæmt heimildum Fótbolta.net haft samband við Donna.

Borja Martin Iglesias hætti störfum sem þjálfari Völsungs eftir tímabil en hann náði að halda liðinu uppi í deildinni á dramatískan hátt.

Þá er einnig mögulegt að hann fari norður og verði í teymi Sigurðar Höskuldssonar hjá Þór en Donni var aðstoðarþjálfari Sigga hjá Leikni.
Tók við Njarðvík eftir að hafa gert Vestra að bikarmeisturum.

Tók við Njarðvík eftir að hafa gert Vestra að bikarmeisturum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Þjálfarastarfið hjá Gróttu er laust.

Þjálfarastarfið hjá Gróttu er laust.

Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Donni sagði sömuleiðis upp störfum hjá Njarðvík.

Donni sagði sömuleiðis upp störfum hjá Njarðvík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.