Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 27. nóvember 2021 18:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp: Það er eitthvað sem við verðum að hugsa um
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.
Mynd: Getty Images
„Þetta var þægilegt," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir 4-0 sigur á Southampton í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Southampton fékk færi til að skora í leiknum en Alisson var vel á verði í markinu hjá Liverpool.

„Við getum bætt okkur, en ég skil vel að það er erfitt að halda einbeitingu þegar þú vinnur þrjá leiki á einni viku. Það er erfitt fyrir hvaða manneskju sem er. Við hefðum samt alveg getað skorað meira ef það hefði verið meiri ró í okkar leik."

„Það er eitthvað sem við verðum að hugsa um. Ákvörðunartakan hefði getað verið betri. Þetta var þægilegt undir lokin en mér leið ekkert alltof vel á meðan leiknum stóð."

Liverpool skoraði snemma og var það mikilvægt fyrir liðið. „Tölfræðin segir að Southampton skorar stærstan hluta marka sinna á fyrstu 20 mínútunum. Það var því mikilvægt að skora snemma. Í dag mættum við til leiks frá fyrstu sekúndu."
Athugasemdir
banner
banner
banner