27.11.26 - 06:12
Ívan Guðjón Baldursson
Le Bris: Höfum verið að gefa mörk allt tímabilið

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Régis Le Bris þjálfari Sunderland svaraði spurningum eftir jafntefli á heimavelli gegn Jagiellonia frá Póllandi þegar liðin mættust í Evrópudeildinni í gærkvöldi.

TENGT EFNI
Evrópudeildin: Orri tapaði í London - Willum vann gegn Rennes
Úkraínumaðurinn ungi Timur Tuterov náði forystunni fyrir heimamenn í Sunderland í upphafi síðari hálfleiks en pólsku gestunum tókst að jafna, svo lokatölur urðu 1-1.
„Það vantaði samræmi. Fyrri hálfleikurinn var allt í lagi og það var mikilvægt að skora fyrsta markið í upphafi síðari hálfleiks út af við vissum að við þyrftum að nýta allar fimm skiptingarnar í síðari hálfleik til að hvíla menn fyrir næstu leiki. Það var mjög mikilvægt að ná forystunni í kvöld," sagði Le Bris.
„Það var góð orka í liðinu en þeir gerðu okkur erfitt fyrir, við áttum erfitt með að spila boltanum innan liðsins og tengdum ekki alveg nógu vel. Stemningin í klefanum var samt góð og mjög góð orka í kringum strákana."
Le Bris er ósáttur með jöfnunarmarkið sem Jagiellonia skoraði eftir hörmulegan varnarleik Sunderland, þar sem varnarmenn gerðu tvö slæm mistök áður en Pólverjarnir jöfnuðu.
„Staðreyndin er sú að við gáfum þeim jöfnunarmarkið, eins og við höfum verið að gera allt tímabilið. Tölfræðin segir að þetta tímabil höfum við verið að gera rosalega mikið af slæmum mistökum sem leiða til marks og þetta er gott dæmi um það.
„Í síðustu tveimur leikjum gerðum við engin svona mistök en þetta klúður í dag minnir okkur á að við megum aldrei slaka á og missa einbeitingu. Andstæðingar á þessu gæðastigi geta alltaf refsað fyrir svona mistök. Við megum ekki gera svona mistök."
Sunderland var ekki búið að fá mark á sig í tvo leiki í röð fyrir jafnteflisleikinn gegn Jagiellonia í gær.

Evrópudeildin
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Bournemouth | 5 | +10 | 15 |
| 2 | Juventus | 5 | +10 | 13 |
| 3 | Ferencvaros | 5 | +8 | 13 |
| 4 | Leverkusen | 5 | +9 | 12 |
| 5 | Benfica | 5 | +6 | 12 |
| 6 | St. Gilloise | 5 | +8 | 11 |
| 7 | Besiktas | 5 | +4 | 10 |
| 8 | Olympiakos | 5 | +1 | 10 |
| 9 | NEC | 5 | +1 | 10 |
| 10 | AZ | 5 | +5 | 9 |
| 11 | Anderlecht | 5 | +5 | 9 |
| 12 | Crystal Palace | 5 | +4 | 8 |
| 13 | Sunderland | 5 | 0 | 8 |
| 14 | Lyon | 5 | -1 | 8 |
| 15 | Hoffenheim | 5 | +2 | 7 |
| 16 | Levski | 5 | 0 | 7 |
| 17 | Dinamo Zagreb | 5 | -1 | 7 |
| 18 | Salzburg | 5 | -3 | 7 |
| 19 | Plzen | 5 | 0 | 6 |
| 20 | OFI | 5 | -1 | 6 |
| 21 | Rennes | 5 | -1 | 6 |
| 22 | Milan | 5 | -1 | 6 |
| 23 | Torreense | 5 | -3 | 6 |
| 24 | Marseille | 5 | -3 | 6 |
| 25 | Omonia | 5 | -4 | 6 |
| 26 | Celtic | 5 | -4 | 6 |
| 27 | Real Sociedad | 5 | +4 | 5 |
| 28 | Celje | 5 | -4 | 5 |
| 29 | Sparta Prag | 5 | -2 | 4 |
| 30 | Jagiellonia | 5 | -3 | 4 |
| 31 | Sturm | 5 | -5 | 4 |
| 32 | Celta | 5 | -3 | 3 |
| 33 | Lillestrom | 5 | -8 | 2 |
| 34 | Lech | 5 | -10 | 2 |
| 35 | Hapoel Beer Sheva | 5 | -8 | 1 |
| 36 | Ararat-Armenia | 5 | -12 | 0 |