Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 28. janúar 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Umferðirnar klárast í ítalska og spænska bikarnum
Athletic Bilbao mætir liðinu sem sló út Real Madrid í síðustu umferð.
Athletic Bilbao mætir liðinu sem sló út Real Madrid í síðustu umferð.
Mynd: Getty Images
Í vikunni hafa farið fram leikir í ítalska og spænska bikarnum. Í kvöld klárast 8-liða úrslitin í ítalska bikarnum og 16-liða úrslitin í spænsku bikarkeppninni.

Það fer einn leikur fram á Ítalíu. Ríkjandi bikarmeistarar Napoli taka á móti Spezia, sem hefur komið nokkuð á óvart í úrvalsdeildinni í vetur og situr í 15. sæti eins og er. Napoli er í sjötta sæti deildarinnar og er sigurstranglegri aðilinn fyrir kvöldið.

Sigurvegarinn í þessum leik mætir Atalanta í undanúrslitum bikarkeppninnar.

Á Spáni fara fram tveir síðustu leikirnir í 16-liða úrslitunum. Athletic Bilbao og Granada mæta liðum úr C-deild. Bilbao mætir Alcoyano, liðinu sem sló Real Madrid mjög óvænt úr leik í síðustu umferð. Kemur Alcoyano aftur á óvart í kvöld?

fimmtudagur 28. janúar

ITALY: National Cup
20:00 Napoli - Spezia

SPAIN: National cup
18:00 Navalcarnero - Granada CF
20:00 Alcoyano - Athletic
Athugasemdir
banner