Það fara sex leikir fram í keppnum á íslenska undirbúningstímabilinu í dag og hefst fjörið strax í hádeginu þegar Stjarnan mætir Keflavík í Garðabæ.
Liðin eigast þar við í bronsleik Þungavigtabikarsins eftir að hafa endað í öðru sæti riðlakeppninnar.
Þar á eftir fer Reykjavíkurmótið af stað þar sem tveir leikir eru á dagskrá í karlaflokki og einn í kvennaflokki. KR mætir ÍR í bæði karla- og kvennaflokki á meðan Fylkir tekur á móti Víkingi R. í spennandi slag karlamegin.
Að lokum eru tveir leikir á dagskrá í Kjarnafæðismótinu sem er haldið árlega á Akureyri.
Þungavigtabikarinn - Leikur um 3. sæti
12:00 Stjarnan - Keflavík (Samsungvöllurinn)
Reykjavíkurmót karla - A-riðill
14:00 KR-ÍR (KR-völlur)
14:00 Fylkir-Víkingur R. (Würth völlurinn)
Reykjavíkurmót kvenna - B-riðill
18:00 KR-ÍR (Egilshöll)
Kjarnafæðismótið - Karla: A-deild, riðill 1
19:00 Dalvík/Reynir-Þór 2 (Boginn)
Kjarnafæðismótið - Karla: A-deild, riðill 2
17:00 KFA-KF (Boginn)