Manchester City sló Arsenal út úr enska bikarnum í gær í fjórðu umferðinni en liðið vann 1-0 sigur á Etihad vellinum í Manchester.
Varnarmaðurinn Nathan Aké gerði eina mark leiksins en John Stones, varnarmaður Man City, meiddist í leiknum sem eru slæmar fréttir fyrir þá bláklæddu.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Stones meiðist aftan í læri á þessari leiktíð en það gerðist í leik með enska landsliðinu á síðasta ári. Þá var hann frá í nokkrar vikur.
Hann fékk tak í lærið í síðari hálfleiknum og segir stjóri liðsins, Pep Guardiola, að Stones hafi verið þreytulegur að sjá í gærkvöldi.
„Hann var ekki tilbúinn í dag (í gær). Ég sá það frá fyrstu mínútu. Ég veit ekki hvort hann hafi verið þreyttur en þegar þú ert svona þá verðuru fyrir meiðslum."
Aymeric Laporte kom inn á fyrir Stones og kláraði leikinn í hjarta varnarinnar með Svisslendingnum Manuel Akanji.