Casemiro, miðjumaður Manchester United, er opinn fyrir því að ganga í raðir ítalska félagsins Roma áður en félagaskiptaglugginn lokar.
Hann hefur fengið minna hlutverk eftir að Rúben Amorim tók við stjórnartaumunum hjá Man Utd.
Hann hefur fengið minna hlutverk eftir að Rúben Amorim tók við stjórnartaumunum hjá Man Utd.
Casemiro er launahæsti leikmaður Man Utd með um 350 þúsund pund í vikulaun en Amorim vill frekar nota aðra leikmenn á miðsvæðinu.
Samkvæmt ítalska fréttamanninum Gianluca Di Marzio er Casemiro opinn fyrir því að fara til Roma. Gæti hann farið þangað á láni áður en félagaskiptaglugginn lokar. Hann hefur einnig verið orðaður við félög í Sádi-Arabíu.
Man Utd vill helst selja Casemiro en hefur ekki fengið neitt kauptilboð enn sem komið er.
Casemiro er orðinn 32 ára gamall og hefur leikið með Man Utd frá 2022. Það virðist styttast í endalok hans hjá United.
Athugasemdir