Dortmund er í stjóraleit eftir að Nuri Sahin var látinn taka pokann sinn í síðustu viku.
Greint hefur verið frá því að Erik ten Hag og Louis Van Gaal, fyrrum stjórar Man Utd höfnuðu tilboði frá félaginu.
Florian Plettenberg hjá Sky Sports í Þýskalandi segir frá því að þýska félagið hafi rætt við annan fyrrum stjóra Man Utd, Ralf Rangnick.
Dortmund er tilbúið að bíða eftir honum þar til í sumar en Plettenberg segir að Rangnick muni að öllum líkindum hafna Dortmund. Rangnick er landsliðsþjálfari Austurríkis en samningur hans við landsliðið rennur út um áramótin.
Athugasemdir