Fotbolti.net
28.02.21 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Lengjubikarinn: Valur með fullt hús og Ólsarar án stiga

Valur er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki.

Valur er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Valur 3 - 0 Víkingur Ó.</b>
1-0 Kaj Leo í Bartalsstovu ('27)
2-0 Sigurður Egill Lárusson ('42)
3-0 Patrick Pedersen ('81)
<u>Rautt spjald:</u> Patrick Pedersen, Valur ('86)
Valur vann öruggan sigur á Víkingi Ólafsvík þegar liðin áttust við á Origo-vellinum í A-deild Lengjubikarsins í dag.

Íslandsmeistarar Vals tóku forystuna á 27. mínútu þegar Færeyingurinn Kaj Leo í Bartalsstovu skoraði. Fyrir leikhlé bætti Sigurður Egill Lárusson við marki og staðan 2-0 í hálfleik fyrir heimamenn.

Patrick Pedersen innsiglaði svo sigurinn með marki á 81. mínútu og lokatölur 3-0 fyrir Val sem er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki. Patrick, sem byrjaði á bekknum, fékk að líta rauða spjaldið stuttu eftir að hann skoraði fyrir að því virtist vera pirringsbrot.

Ólsarar eru án stiga eftir fyrstu þrjá leiki sína í mótinu en þeim var ekki spáð góðu gengi í ótímabærri spá fyrir Lengjudeildina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.