Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 28. mars 2020 11:30
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp: Eina lausnin að sýna aga og þolinmæði
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, er gríðarlega spenntur fyrir að hefja fótboltatímabilið á nýjan leik og hvetur fólk til að sýna aga og þolinmæði.

Klopp vill ólmur klára tímabilið enda er Liverpool við það að vinna efstu deild á Englandi í fyrsta sinn í 30 ár.

„Eina leiðin til að byrja að spila fótbolta aftur er að sýna mikinn aga og þolinmæði. Því agaðari sem við erum núna því fyrr getum við byrjað að njóta okkar daglega lífs aftur," sagði Klopp.

„Það er engin önnur lausn eins og staðan er núna, það er enginn með neina aðra lausn. Við verðum að vera öguð og halda okkur frá öðru fólki. Því færri sem eru smitaðir þegar heimurinn fer af stað aftur því minni líkur eru að þetta verði aftur að vandamáli.

„Sú stund mun renna upp þegar gáfað fólk finnur upp bóluefni en þangað til verðum við að passa okkur."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner