Huddersfield Town hefur ráðið Martin Drury sem knattspyrnustjóra til frambúðar. Hann hefur stýrt liðinu til bráðabirgða síðustu mánuði.
Drury kom inn í teymi Huddersfield, þá sem aðstoðarmaður Liam Manning, en stýrði liðinu síðan út tímabilið eftir að Manning tók sér frí vegna persónulegra ástæðna.
Manning hætti síðan með liðið í byrjun mánaðarins og var Drury gerður að bráðabirgðastjóra.
Drury hefur nú fengið starfið til frambúðar, en Jon Stead, fyrrum framherji Blackburn Rovers og Huddersfield, verður aðstoðarmaður hans.
Áður starfaði Drury sem þjálfari hjá akademíu Manchester United og WBA og þá var hann um skamma hríð hjá Valencia á Spáni og í teymi Keith Andrews hjá Brentford.
Huddersfield spilar í C-deildinni á Englandi en liðið hafnaði í 9. sæti deildarinnar á nýafstöðnu tímabili.



