HM-hetjan Fabio Grosso er að taka við ítalska félaginu Fiorentina, en þetta segir Fabrizio Romano á X.
Grosso er hvað þekktastur fyrir frábæra frammistöðu sína með Ítalíu á HM 2006.
Hann skoraði fyrra markið í 2-0 sigri á Þjóðverjum í undanúrslitum mótsins og sigurvítið í vítakeppninni gegn Frökkum í úrslitaleiknum.
Grosso hóf þjálfun árið 2013 þá fyrst hjá unglingaliði Juventus, en síðan þá hefur hann stýrt aðalliðum Hellas Verona, Bari, Siena, Brescia, Frosinone, Lyon og nú síðast Sassuolo.
Hann kom Sassuolo upp í Seríu A á síðasta ári og þá hafnaði liðið í 11. sæti á þessari leiktíð.
Romano segir að hann sé nú að taka við Alberti Guðmundssyni og félögum í Fiorentina. Samningurinn er til tveggja ára og mun hann þar endurnýja kynni sín með Fabio Paratici, sem gaf honum tækifærið á að þjálfa hjá Juventus fyrir þrettán árum.
Stefano Piolo var rekinn frá Fiorentina snemma á tímabilinu og tók Paolo Vanoli við liðinu. Hann bjargaði liðinu frá falli, en það stóð ekki til að framlengja dvöl hans hjá félaginu.




