Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   fim 28. maí 2026 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM hópur Argentínu - Messi fer á sitt sjötta mót
Mynd: EPA
Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, hefur opinberað 26 manna hóp sem fer á HM sem fram fer í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.

Lionel Messi þurfti að fara af velli vegna meiðsla í leik með Inter Miami á dögunum en hann er í argentíska hópnum og er á leið á sitt sjötta Heimsmeistaramót.

Argentína er ríkjandi Heimsmeistari eftir sigur á Frakklandi í vítaspyrnukeppni á HM í Katar 2022.

Kjarninn úr því liði fer á HM í sumar en Marcos Acuna er ekki í hópnum í þetta sinn ásamt Franco Mastantuono, leikmanni Real Madrid.

Argentína mætir Alsír, Jórdaníu og Austurríki í J-riðli. Fyrsti leikurinn er gegn Alsír þann 17. júní.

Markmenn
Emiliano “Dibu” Martínez (Aston Villa)
Gerónimo Rulli (Olympique Marseille)
Juan Musso (Atlético de Madrid)

Varnarmenn
Leonardo Balerdi (Olympique Marseille)
Nicolás Tagliafico (Olympique Lyon)
Gonzalo Montiel (River Plate)
Lisandro Martínez (Manchester United)
Cristian Romero (Tottenham Hotspur)
Nicolás Otamendi (Benfica)
Facundo Medina (Olympique Marseille)
Nahuel Medina (Atlético de Madrid)

Miðjumenn
Leandro Paredes (Boca Juniors)
Rodrigo De Paul (Inter Miami)
Valentín Barco (Racing Strasbourg)
Giovani Lo Celso (Real Betis)
Exequiel Palacios (Bayer Leverkusen)
Alexis Mac Allister (Liverpool)
Enzo Fernández (Chelsea)

Sóknarmenn
Julián Álvarez (Atlético de Madrid)
Lionel Messi (Inter Miami)
Nico González (Atlético de Madrid)
Thiago Almada (Atlético de Madrid)
Giuliano Simeone (Atlético de Madrid)
Nico Paz (Como)
Juan Manuel López (Palmeiras)
Lautaro Martínez (Inter Milan)

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner