Sæti 44 til 41
Við höldum áfram að hita upp fyrir HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Spennan er heldur betur farin að magnast fyrir þessum viðburði sem verður mögulega sá stærsti í íþróttasögunni.
Það mæta 48 lið til leiks en við á Fótbolta.net kynnum liðin til leiks í sérstakri kraftröðun (e. power rankings) þar sem við röðum liðunum niður frá því slakasta til hins besta. Við tökum fjögur lið fyrir í hverri frétt fram að móti og kynnum við liðin aðeins til sögunnar. Við höldum svo áfram kraftröðuninni á meðan mótinu stendur.
Við byrjuðum á fjórum slökustu liðunum og höldum núna áfram með næstu fjögur lið.
Það mæta 48 lið til leiks en við á Fótbolta.net kynnum liðin til leiks í sérstakri kraftröðun (e. power rankings) þar sem við röðum liðunum niður frá því slakasta til hins besta. Við tökum fjögur lið fyrir í hverri frétt fram að móti og kynnum við liðin aðeins til sögunnar. Við höldum svo áfram kraftröðuninni á meðan mótinu stendur.
Við byrjuðum á fjórum slökustu liðunum og höldum núna áfram með næstu fjögur lið.
44. Írak
Eru í 57. sæti á heimslistanum.
Írak er komið aftur á HM í fyrsta sinn í 40 ár eftir dramatíska undankeppni. Mesópótamíuljónin urðu síðasta liðið til að tryggja sér sæti á mótinu og innsigluðu farseðilinn með 2-1 sigri gegn Bólivíu. Leiðin á HM var allt annað en einföld. Írak rak spænska þjálfarann Jesús Casas í mars og réð í hans stað fyrrverandi landsliðsþjálfara Ástralíu, Graham Arnold. Hann kom liðinu nálægt HM en Írak var á eftir Sádi-Arabíu á skoruðum mörkum í lokaumferð Asíukeppninnar. Þá tók við sannkallaður taugatitringur. Írak vann Sameinuðu arabísku furstadæmin í umspili með vítaspyrnu á 107. mínútu og tryggði sér þar með sæti í alþjóðlega umspilinu. Vegna stöðunnar í Mið-Austurlöndum var ferðalagið og undirbúningurinn langt frá því að vera einfaldur, en liðið komst til Mexíkó og kláraði verkefnið með sigri á Bólivíu. Arnold var borinn um völlinn vafinn íröskum fána eftir að HM-sætið var tryggt og hrósaði leikmönnum sínum fyrir að sýna „hinn sanna írakska baráttuanda“. Raunveruleikinn á HM gæti þó orðið harður. Frakkland, Senegal og Noregur bíða í riðlinum og fáir sjá Írak eiga raunhæfa möguleika. En fyrir þjóð sem hefur beðið í fjóra áratugi eftir að komast aftur á þetta svið er það eitt og sér risastór sigur.
Þjálfarinn: Graham Arnold tók við Írak í mars eftir að Jesús Casas var rekinn og náði á skömmum tíma að leiða liðið aftur á HM eftir 40 ára bið. Arnold er eitt stærsta þjálfaranafn Ástralíu, hefur áður þjálfað bæði landsliðið og Sydney FC með góðum árangri. Með Arnold í teyminu er einnig kunnuglegt nafn; Hollendingurinn René Meulensteen, fyrrum aðstoðarmaður Sir Alex Ferguson hjá Manchester United, sem fylgdi Arnold frá ástralska landsliðinu til Íraks.
Lykilmaður: Aymen Hussein (Al-Karma) er stóra ógn Íraka fram á við. Kraftmikill og hávaxinn framherji sem hefur verið markahrókur landsliðsins undanfarin ár og vakti heimsathygli á Asíumótinu 2024 þar sem hann skoraði sex mörk, þar á meðal tvö í fræknum 2-1 sigri gegn Japan. Hussein skoraði einnig sigurmarkið gegn Bólivíu sem tryggði Írak HM-sætið eftir 40 ára bið.
Gaman að fylgjast með: Kevin Yakob (AGF) er eitt áhugaverðasta nafnið í hópnum hjá Írak. Miðjumaðurinn er fæddur og uppalinn í Gautaborg í Svíþjóð, lék með yngri landsliðum Svía og spilar félagsliðabolta með danska liðinu AGF þar sem hann varð meistari á nýliðnu tímabili. Yakob valdi að lokum að spila fyrir Írak og kemur með tækni, yfirvegun og smá skandinavískt yfirbragð inn á miðju liðsins.
Leikir á HM: Noregur í Boston (16. júní); Frakkland í Philadelphia (22. júní); Senegal í Toronto (26. júní).
43. Jórdanía
Eru í 63. sæti á heimslistanum.
Jórdanía verður á HM í fyrsta sinn í sögu sinni eftir að hafa haldið áfram að fara langt fram úr væntingum síðustu ár. Fáir bjuggust við miklu af liðinu á Asíumótinu 2023 en Jórdanar komu öllum á óvart, fóru alla leið í úrslitaleikinn og fylgdu því svo eftir með því að tryggja sér sögulegt HM-sæti með 3-0 sigri gegn Óman. Liðið hefur byggt árangur sinn á skipulögðum varnarleik og mikilli liðsheild en undirbúningurinn fyrir HM hefur líka sýnt að það eru veikleikar til staðar. Jórdanía fær sjaldan tækifæri til að mæta liðum utan Asíu og arabíska heimsins, þannig að vináttuleikir gegn Kosta Ríka og Nígeríu vöktu sérstaka athygli. Báðir enduðu 2-2, sem gaf ákveðin jákvæð teikn fram á við en vakti líka spurningar um varnarleikinn. Jórdanía er eitt af óreyndari liðum mótsins og þarf að forðast að falla í „bara gaman að vera með" hugsunarháttinn ef liðið ætlar sér að gera eitthvað meira en að safna minningum. En eftir að hafa ítrekað komið á óvart í Asíu væri kannski ekki skynsamlegt að afskrifa Jórdana alveg.
Þjálfarinn: Jamal Sellami tók við Jórdaníu árið 2024 og varð skömmu síðar fyrsti þjálfarinn til að koma þjóðinni á HM. Sellami er fyrrum landsliðsmaður Marokkó, lék með þjóð sinni á HM 1998 og á að baki sterkan feril bæði hjá Raja Casablanca og Besiktas. Sem þjálfari hefur hann meðal annars unnið marokkósku deildina með Raja Casablanca áður en hann tók við Jórdönum.
Lykilmaður: Musa Al-Taamari (Rennes) er stærsta stjarna Jórdaníu og maðurinn sem getur breytt leikjum upp á eigin spýtur. Kantmaðurinn leikur með Rennes í Frakklandi og varð fyrstur Jórdana til að spila í einni af fimm stærstu deildum Evrópu þegar hann fór til Montpellier. Al-Taamari er þekktur fyrir hraða, tækni og hæfileikann til að keyra á varnarmenn og hann var algjör lykilmaður þegar Jórdanía fór óvænt alla leið í úrslitaleik Asíumótsins.
Gaman að fylgjast með: Ibrahim Sabra (Lokomotiva Zagreb) gæti orðið eitt af nöfnunum sem fleiri læra að þekkja á HM. Framherjinn er aðeins tvítugur en hefur þegar bankað fast á dyrnar hjá landsliðinu. Sabra er kraftmikill sóknarmaður með hraða og markanef og skoraði sitt fyrsta A-landsliðsmark gegn Kosta Ríka í mars.
Leikir á HM: Austurríki í San Francisco (16. júní); Alsír í San Francisco (22. júní); Argentína í Dallas (27. júní).
42. Nýja-Sjáland
Eru í 85. sæti á heimslistanum.
Nýja-Sjáland er komið aftur á HM í fyrsta sinn síðan árið 2010 og er eitt þeirra liða sem hagnast hvað mest á stækkuðu móti. Eyjaálfa fékk í fyrsta sinn beint sæti á heimsmeistaramótið og 'All Whites' nýttu sér það til fulls. Það breytir þó ekki því að margir setja spurningarmerki við styrkleika liðs sem kemur úr veikasta álfusambandi heims. Nýsjálendingar hafa hins vegar sýnt að þeir geta strítt sterkari andstæðingum. Í október náðu þeir 1-1 jafntefli í heimsókn til Noregs og í mars kom svo óvæntur 4-1 sigur gegn Síle, fyrsti sigur þjóðarinnar gegn suður-amerísku landsliði í sögunni. Sá sigur kom á góðum tíma eftir 2-0 tap gegn Finnlandi og gaf liðinu kærkomið sjálfstraust fyrir lokaundirbúninginn. Chris Wood var með liðinu á HM 2010 og er enn stærsta stjarna þjóðarinnar og skýr fókuspunktur í sóknarleiknum. Raunhæft markmið verður líklega að berjast fyrir stigum í riðlakeppninni frekar en einhverju stærra ævintýri. Skipulag, agi og barátta geta þó tekið lið lengra en margir búast við.
Þjálfarinn: Darren Bazeley hefur stýrt Nýja-Sjálandi frá árinu 2023 eftir að hafa unnið sig upp í gegnum yngri landsliðakerfi þjóðarinnar um árabil. Englendingurinn, sem lék á sínum tíma meðal annars með Watford og Wolves, flutti til Nýja-Sjálands undir lok leikmannaferilsins og varð ríkisborgari þar árið 2015. Bazeley hefur mikla reynslu af landsliðsstarfi, bæði með U17, U20 og Ólympíuliðum landsins, og leiddi nú 'All Whites' aftur á HM í fyrsta sinn í 16 ár.
Lykilmaður: Chris Wood (Nottingham Forest) er andlit og hjarta þessa nýsjálenska liðs. Framherjinn, sem leikur með Nottingham Forest, var einnig með á HM 2010 og er enn stærsta stjarna þjóðarinnar 16 árum síðar. Wood er fyrirliði, markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins og skýr fókuspunktur í sóknarleik liðsins. Klassísk nía sem getur gert lífið erfitt fyrir hvaða varnarlínu sem er.
Gaman að fylgjast með: Tyler Bindon (Nottingham Forest) er yngsti leikmaðurinn í hópi Nýja-Sjálands en er þó kominn með töluverða reynslu. Miðvörðurinn er aðeins 21 árs gamall en hefur nú þegar skapað sér nafn í enska boltanum eftir að hafa farið frá Reading til Nottingham Forest og síðan á lán til Sheffield United. Bindon er fæddur í Auckland, ólst að hluta upp í Bandaríkjunum og lék meira að segja með U19 landsliði Bandaríkjanna áður en hann valdi Nýja-Sjáland. Sterkur í loftinu, yfirvegaður á boltanum og er mest spennandi leikmaðurinn í þessum hóp.
Leikir á HM: Íran í Los Angeles (15. júní); Egyptaland í Vancouver (21. júní); Belgía í Vancouver (26. júní).
41. Suður-Afríka
Eru í 60. sæti á heimslistanum.
Suður-Afríka er komið aftur á HM í fyrsta sinn síðan þjóðin hélt eitt eftirminnilegasta heimsmeistaramót síðari tíma árið 2010. Mótið í Suður-Afríku var algjör veisla: Vuvuzelurnar, stemningin og auðvitað ógleymanlega augnablikið þegar Siphiwe Tshabalala skoraði fyrsta mark mótsins gegn Mexíkó. „Goal for South Africa! Goal for all Africa!“ - lýsingin lifir enn í minningunni hjá ansi mörgum og sömuleiðis fagnaðarlætin sem fylgdu.
'Bafana Bafana' þurfti að hafa fyrir HM-sætinu að þessu sinni. Á pappírnum lítur undankeppnin ekkert sérstaklega glæsilega út en Suður-Afríka þurfti meðal annars að glíma við þriggja stiga refsingu fyrir að nota ólöglegan leikmann sem er eiginlega ótrúlegt í landsliðsfótbolta. Liðið er líklega sterkara en taflan gaf til kynna. Hugo Broos hefur byggt liðið að stórum hluta í kringum leikmenn frá Mamelodi Sundowns, sem hefur verið sterkasta félagslið Suður-Afríku í mörg ár, og það sést á spilamennskunni. 'Bafana Bafana' gæti orðið eitt skemmtilegasta liðið til að horfa á meðal neðri hluta kraftröðunarinnar. Undirbúningurinn hefur ekki verið gallalaus. Jafntefli og tap gegn Panama í mars hafa kallað fram gagnrýni á Broos í fyrsta sinn frá því hann tók við liðinu. Þjálfarinn hefur sjálfur bent á að þessir leikir hafi átt að sýna liðinu hvað þurfi að bæta fyrir mótið. Suður-Afríka kemur samt inn á HM með ákveðna trú á verkefninu og ágætan riðil miðað við mörg önnur lið í þessum hluta listans. Að komast upp úr riðlinum verður erfitt, en líklega ekki jafn fjarlægur draumur og hjá sumum öðrum þjóðum sem eru neðarlega í kraftröðuninni.
Þjálfarinn: Hugo Broos er gríðarlega reynslumikill þjálfari sem hefur stýrt Suður-Afríku síðan 2021 og byggt upp lið sem margir telja hafa fundið skýra sjálfsmynd. Belginn gerði bæði Anderlecht og Club Brugge að meistara í Belgíu á árum áður en náði sínum stærsta árangri sem landsliðsþjálfari þegar hann gerði Kamerún að Afríkumeisturum árið 2017. Broos hefur lagt áherslu á skemmtilegan bolta hjá Suður-Afríku og treyst mikið á kjarna leikmanna frá Mamelodi Sundowns.
Lykilmaður: Lyle Foster (Burnley) er maðurinn sem Suður-Afríka horfir helst til þegar kemur að mörkum. Framherjinn hjá Burnley er einn af fáum leikmönnum liðsins sem spilar reglulega í evrópskum toppbolta og sameinar hraða, vinnusemi og getu til að skapa sér færi upp á eigin spýtur. Ef Suður-Afríka ætlar að gera eitthvað á HM þarf Foster örugglega að eiga gott mót.
Gaman að fylgjast með: Ronwen Williams (Mamelodi Sundowns) er kannski ekki óþekkt nafn í Afríkufótboltanum, en markvörðurinn verður engu að síður mjög áhugaverður að fylgjast með í sumar. Fyrirliðinn sem er einn af mörgum leikmönnum Mamelodi Sundowns í hópnum vakti heimsathygli á Afríkumótinu 2024 þegar hann varði fjórar vítaspyrnur í leik gegn Grænhöfðaeyjum. Williams er leiðtogi, frábær markvörður og einn mikilvægasti hlekkurinn í liðinu. Hann var valinn níundi besti markvörður heims árið 2024.
Leikir á HM: Mexíkó í Mexico City (11. júní); Tékkland í Atlanta (18. júní); Suður-Kórea í Monterrey (24. júní).
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!




