Heimild: Vísir
Arnar Þór Viðarsson hefur verið í tvöföldu starfi hjá KSÍ, sem yfirmaður fótboltamála og landsliðsþjálfari. Í haust mun þó fyrrnefnda staðan vera auglýst laus til umsóknar.
Í umfjöllun Vísis segir að laun Arnars vegna starfanna tveggja séu aðskilin.
Í umfjöllun Vísis segir að laun Arnars vegna starfanna tveggja séu aðskilin.
Arnar mun sinna báðum störfum í tuttugu mánuði og jafnvel lengur, allt eftir því hvernig gengur að finna arftaka hans í haust.
Sindri Sverrisson, blaðamaður á Vísi, spurði Vöndu Sigurgeirsdóttur formann KSÍ af hverju ekki hafi verið brugðist við fyrr svo að Arnar þurfi ekki að sinna tveimur krefjandi störfum á sama tíma?
„Við viljum vanda okkur og undirbúa þetta vel. Svo er þetta líka fjárhagsleg spurning en fyrst og fremst snýst þetta um að við viljum vanda okkur því þetta er mjög mikilvægt starf," svaraði Vanda.
Athugasemdir