„Lítil hreyfing á mönnum og við vorum bara hundlélegir“
Auglýsing

Vigfús Arnar, þjálfari Leiknis

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vigfús Arnar, þjálfari Leiknis

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leiknismenn eru í næst neðsta sæti Lengjudeildarinnar eftir átta leiki og við blasir fallbarátta en liðið tapaði enn einum leiknum í dag er liðið heimsótti Vestra á Ísafjörð.
Lestu um leikinn: Vestri 1 - 0 Leiknir R.
Leiknir vann fyrsta leik deildarinnar í byrjun maí en hefur síðan tapað fimm leikjum og gert tvö jafntefli.
Liðið átti fína kafla í leiknum í dag og fékk meðal annars vítaspyrnu en Rafael Broetto varði frá Daníel Finns Matthíassyni.
Í þeim síðari gerði Vestri það sem Leikni tókst ekki og það var að skora.
„Gríðarlega svekktur. Okkur vantaði þessi þrjú stig sárlega en hundfúlt að tapa þessum leik. Við vorum mjög lélegir í seinni hálfleik og gekk illa hjá okkur. Þeir skoruðu og við ekki og þar liggur munurinn á liðunum í þessum leik.“
„Nei, þeir fengu einhver tækifæri og við ætluðum ekkert að leggjast til baka. Það gekk illa að halda í boltann og þeir herjuðu aðeins á okkur og vorum ótrúlega staðir í sóknarleiknum í seinni hálfleik og misstum boltann oft. Lélegar ákvarðanatökur á boltann og lítil hreyfing á mönnum og hundlélegir,“ sagði Vigfús Arnar Jósefsson, þjálfari Leiknis, við Fótbolta.net.
Eins og áður kom fram hefur Leiknir ekki unnið síðan í fyrstu umferð mótsins en Vigfús segir ekkert annað í stöðunni en að hreinsa hugann og gera sig klára í næsta leik.
„Það er bara sama verkefnið. Unnum fyrsta leik og höfum ekki unnið síðan. Við þurfum að sækja þrjú stig og spilum næst á móti Njarðvík á sunnudaginn og þar eru næstu þrjú stig í boði. Við verðum að ráðast á þessi stig og ná í þau þar. Í þessari baráttu sem við erum í skiptir hvert einasta stig miklu máli, bæði upp á töfluna og sjálfstraustið og andlegu hliðina. Eins erfitt og það er að segja það núna þá er það bara staðreynd að við verðum að hreinsa þetta út. Við verðum að nota ferðalagið núna í nótt að hreinsa hugann og gera okkur klára fyrir næsta leik,“ sagði hann í lokin.