Besti leikur sumarsins? - „Aldrei upplifað neitt þessu líkt\"

Murielle í leik með Tindastól.

Mynd: Aðsend - Murielle Tiernan

Úr leik hjá Tindastól og Gróttu.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Murielle í leik með Tindastól.

Mynd: Aðsend - Murielle Tiernan

Það var rosalegur leikur í 2. deild kvenna í gær þegar Tindastóll vann Gróttu.
Grótta komst í 5-2 en Stólunum tókst einhvern veginn að koma til baka og vinna leikinn 6-5.
Klárlega einn af bestu leikjum sumarsins á Íslandi hingað til, líklega sá besti.
Murielle Tiernan skoraði þrennu á átta mínútum og tryggði gestunum sigur. Hún segir í samtali við Fótbolta.net aldrei hafa upplifað annað eins.
„Það segir mikið um okkar lið að gefast ekki upp, þremur mörkum undir og 20-30 mínútur eftir,\" sagði Murielle.
„Þriðja markið okkar var lykillinn að endurkomunni og þegar við náðum því og vorum bara tveimur mörkum undir með 20 mínútur eftir, þá komum við saman og ákváðum við að við ættum möguleika að koma til baka. Fjórða, fimmta og sjötta markið eru í móðu - við vorum með þær á hælunum og þær gátu ekki jafnað sig.\"
„Ég hef spilað í endurkomuleikjum en ég hef aldrei upplifað neitt þessu líkt, ekki fjögurra marka sveiflu á eins skömmum tíma.\"
Murielle er fædd árið 1994 en hún er á sínu fyrsta tímabili á Íslandi. Hún er búin að vera í miklu stuði í sumar og er komin með 14 mörk í 10 deildarleikjum.
„Ég er frá Virgina í Bandaríkjunum, rétt utan við höfuðborgina Washington DC. Ég spilaði fótbolta með Virginia Tech háskólanum, en fór þaðan til Svíþjóðar og spilaði eitt tímabil með Hammarby. Núna er ég hér, á Íslandi vegna þess að þetta var eitt af löndunum sem mig langaði að skoða. Þegar tækifærið kom þá ákvað ég að stökkva á það.\"
„Þetta hefur verið frábær reynsla hingað til, Ísland er öðruvísi en nokkuð annað land sem ég hef komið til - mjög fallegt,\" sagði Murielle að lokum.
Tindastóll er á toppi 2. deildarinnar með 24 stig, en Grótta er í fimmta sæti með 14 stig. Bæði lið eru búin með 10 leiki.