Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 28. júlí 2021 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Man Utd ætlar að framlengja samning Tuanzebe
Mynd: Getty Images
Manchester United ætlar að framlengja samning Axel Tuanzebe um eitt ár og lána hann út á komandi tímabili, samkvæmt frétt Sky Sports.

Tuanzebe er 23 ára gamall miðvörður sem á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Man Utd en félagið hefur möguleika á að framlengja um eitt ár.

Tuanzebe mun ekki fá spiltíma með Rauðu djöflunum í vetur eftir komu Raphaël Varane til félagsins en Harry Maguire, Victor Lindelöf og Eric Bailly eru einnig í leikmannahópnum ásamt Phil Jones.

Tuanzebe lék 19 leiki fyrir Man Utd á síðustu leiktíð, þar af voru 6 byrjunarliðsleikir í ensku úrvalsdeildinni.

Tuanzebe er metinn á um 7 milljónir punda og hefur Newcastle áhuga á honum. Hann fær að nýta komandi leiktíð sem tækifæri til að sanna sig á láni hjá öðru félagi.
Athugasemdir
banner
banner
banner