Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fim 28. júlí 2022 06:00
Elvar Geir Magnússon
McNeil í læknisskoðun hjá Everton
Mynd: Getty Images
Hinn 22 ára gamli Dwight McNeil fór í læknisskoðun hjá Everton í gær en samkvæmt BBC er félagið að kaupa hann fyrir um 20 milljónir punda frá Burnley.

Frank Lampard vill efla sóknarmöguleika sína eftir að Richarlison var seldur til Tottenham.

McNeil kom upp úr unglingastarfi Burnley og lék sinn fyrsta aðalliðsleik 2017. Hann hefur spilað 147 leiki fyrir félagið en Burnley féll úr úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

McNeil verður annar leikmaðurinn sem Everton fær frá Burnley í sumar en áður hafði varnarmaðurinn James Tarkowski komið á frjálsri sölu. Þá hefur Everton verið orðað við framherjann Max Cornet.

Í gær tilkynnti Everton að félagið hefði fengið varnarmanninn Rúben Vinagre lánaðan.
Athugasemdir
banner
banner
banner