Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 27. júlí 2022 15:28
Elvar Geir Magnússon
Vinagre til Everton á lánssamningi (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Sporting Lissabon hefur lánað varnarmanninn Rúben Vinagre til Everton út komandi tímabil. Vinagre er 23 ára Portúgali sem leikur sem vinstri bakvörðu.

Hann er annar leikmaðurinn sem Frank Lampard fær til félagsins í sumar, eftir að James Tarkowski kom frá Burnley.

Vinagre er fyrrum leikmaður Wolves og spilar sinn fyrsta leik fyrir Everton á föstudag þegar liðið mætir Dynamo Kiev.

„Það er draumur að rætast með því að ganga í raðir Everton. Frank Lampard er goðsögn í fótboltanum, allir vita hver hann er og ég hlakka til að læra af honum og aðstoðarmanni hans Ashley Cole sem er einn besti vinstri bakvörður sem ég hef séð," segir Vinagre.


Athugasemdir
banner