Fotbolti.net
28.07.26 - 19:19
Ívan Guðjón Baldursson

Fyrrum leikmaður Arsenal er á reynslu hjá Palace

Fyrrum leikmaður Arsenal er á reynslu hjá Palace
Canon

Mynd: Ajax

Japanski varnarmaðurinn Takehiro Tomiyasu fer með Crystal Palace í æfingaferð til Ítalíu en hann er hjá félaginu á reynslu.
Tomiyasu á leið til Ajax - Verður á árangurstengdum launum
TENGT EFNI

Tomiyasu á leið til Ajax - Verður á árangurstengdum launum

Tomiyasu er samningslaus eftir að hafa leikið fyrir Ajax á seinni hluta síðustu leiktíðar og er spenntur fyrir mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina. Hann býr ennþá í London og var ónotaður varamaður í tapi í æfingaleik gegn Lens í dag.

Tomiyasu vonast til að heilla Pierre Sage nýjan þjálfara Crystal Palace í sumar. Tomiyasu er 27 ára gamall og er afar fjölhæfur varnarmaður sem hefur átt í vandræðum síðustu tvö ár vegna hnémeiðsla.

Hann lék 84 leiki á fjórum árum hjá Arsenal eftir að hafa verið hjá Bologna, Sint-Truiden og Avispa Fukuoka fyrir það. Þar að auki á hann 46 leiki að baki fyrir A-landslið Japan eftir að hafa verið lykilmaður upp yngri landsliðin.

Tomiyasu er með nokkur tilboð á borðinu, þar á meðal tvö úr efstu deild ítalska boltans, en mun kjósa að spila fyrir félag í Lundúnum ef það stendur til boða.
Fyrrum leikmaður Arsenal er á reynslu hjá Palace
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.