28.07.26 - 18:23
Ívan Guðjón Baldursson
Vonast til að vera seldur frá Man City

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sky Sports er meðal fjölmiðla sem segja að brasilíski kantmaðurinn Savinho vilji ólmur skipta um félag.

TENGT EFNI
Savinho sterklega orðaður við Tottenham
Savinho er ósáttur með lítinn spiltíma hjá Manchester City og er mjög spenntur fyrir verkefninu hjá Tottenham Hotspur undir leiðsögn Roberto De Zerbi.
Hjá Tottenham fengi Savinho lykilhlutverk en hann fékk aðeins að spila rétt rúmlega 1500 mínútur í öllum keppnum með Man City á síðustu leiktíð.
Savinho hefur gert stjórnendum ljóst að hann vilji skipta um félag, en City ætlar ekki að selja hann án þess að finna fyrst nýjan kantmann sem passar í leikmannahópinn.
Brassinn er með fimm ár eftir af samningi við City og ljóst að stórveldið ætlar ekki að selja hann með neinum afslætti. City vill fá 60 milljónir punda fyrir Savinho, sem er 22 ára gamall og kostaði rétt rúmar 30 milljónir þegar hann var keyptur fyrir tveimur sumrum.
Savinho vill ólmur skipta um félag og er að reyna að haga sér af fagmennsku. Hann er þakklátur í garð City og gæti þurft að sýna mikla þolinmæði í sumar.