28.07.26 - 19:56
Ívan Guðjón Baldursson
Aston Villa má ekki fá Jackson á láni

Mynd: EPA

Mynd: Aston Villa

Mynd: Chelsea

Mynd: EPA
Framtíð senegalska framherjans Nicolas Jackson er óskýr. Hann er með sjö ár eftir af samningi sínum við Chelsea og eru ýmis félagslið áhugasöm.

TENGT EFNI
Enn ein félagaskiptin á milli Chelsea og Villa?
Jackson var lánaður til þýska stórveldisins FC Bayern á síðustu leiktíð og kom með beinum hætti að 15 mörkum á innan við 1500 mínútum sem varaskeifa fyrir Harry Kane.
Það er rosalega mikil barátta um byrjunarliðssæti í fremstu víglínu hjá Chelsea. Joao Pedro, Liam Delap, Emmanuel Emegha og Marc Guiu eru samningsbundnir Chelsea og hefur félagið þar að auki verið orðað við reynsluboltann Danny Welbeck.
Sky Sports er meðal fjölmiðla sem greina frá því að Chelsea vill helst selja Jackson í sumar en verðmiðinn á honum er í kringum 65 milljónir punda. Það er tvöfalt hærri upphæð heldur en hann var keyptur fyrir sumarið 2023.
Aston Villa var sterklega orðað við Jackson en félagið vildi fá hann til sín á lánssamningi. Það er þó ekki lengur framkvæmanlegt eftir að Alejandro Garnacho fór sömu leið á láni með árangurstengdri kaupskyldu. Úrvalsdeildarfélög mega aðeins vera með einn leikmann á láni í einu frá öðru félagi í sömu deild og því getur Jackson ekki farið á lánssamningi.
Vilji Villa kaupa framherjann getur það reynst mikill hausverkur þegar snýr að fjármálaháttvísinni útaf félagaskiptum Morgan Rogers í hina áttina. Kaup á Nicolas Jackson yrðu flokkuð sem leikmannaskipti í staðinn fyrir Rogers sem yrði til þess að Aston Villa gæti lent í vandræðum með að standast fjármálakröfur enska boltans og UEFA. Þetta eru vonbrigði fyrir Unai Emery þjálfara Villa sem hefur miklar mætur á Jackson eftir að hafa þjálfað hann hjá Villarreal.

Af hverju er Chelsea skyndilega að kaupa gamla leikmenn?

Mynd: Aston Villa

Mynd: Chelsea