Fotbolti.net
28.07.26 - 19:02
Ívan Guðjón Baldursson

Ætla ekki að selja Vinícius í sumar

Ætla ekki að selja Vinícius í sumar
Canon

Mynd: EPA

Sky Sports er meðal fjölmiðla sem segja frá því að brasilíski kantmaðurinn Vinícius Júnior sé ekki á förum frá Real Madrid í sumar þrátt fyrir mikinn áhuga.
Vinícius er aðeins með eitt ár eftir af samningi og er Arsenal meðal áhugasamra félagsliða, en Vini er af mörgum talinn vera einn af allra bestu kantmönnum heimsfótboltans í dag.

Vini er 26 ára gamall og hefur unnið alla titla sem eru í boði hjá Real Madrid. Hann hefur einungis leikið fyrir Real og Flamengo á ferlinum hingað til, auk þess að vera lykilmaður fyrir brasilíska landsliðið.

Real og Vinícius eru að vinna að samkomulagi um nýjan samning en launakröfur Brassans eru taldar vera alltof háar. Stjórnendur Real eru þó sannfærðir um að takast að ganga frá samkomulagi á næstu vikum. Stórveldið hefur ekki áhuga á að selja einn af bestu kantmönnum heims og mun halda áfram í samningsviðræðum við leikmanninn.

Setja verðmiða á Vini Jr
TENGT EFNI

Setja verðmiða á Vini Jr

Ætla ekki að selja Vinícius í sumar
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.