28.08.26 - 07:55
Brynjar Ingi Erluson
3. deild: Sandgerðingar opnuðu titilbaráttuna upp á gátt

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Reynir S. 2 - 1 Víðir
0-1 Ísak John Ævarsson ('19 )
1-1 Eyþór Örn Eyþórsson ('75 )
2-1 Jordan Smylie ('76 )
0-1 Ísak John Ævarsson ('19 )
1-1 Eyþór Örn Eyþórsson ('75 )
2-1 Jordan Smylie ('76 )
Reynir Sandgerði vann afar dýrmætan 2-1 sigur gegn Víði í toppslag 3. deildar karla í gær.
Víðismenn hefðu með sigri nánast tryggt sér sæti í 2. deild en Reynismenn höfðu önnur áform. Gestirnir byrjuðu betur og Ísak John Ævarsson kom þeim yfir á 19. mínútu. Sú forysta hélt allt þar til korter var eftir.
Eyþór Örn Eyþórsson jafnaði fyrir Reyni á 75. mínútu og innan við mínútu síðar sneri Jordan Smylie leiknum við með sigurmarkinu.
Reynir saxaði því á forskot Víðis á toppnum og er nú með 39 stig í öðru sæti, þremur stigum á eftir toppliðinu þegar tvær umferðir eru eftir.
Úrslitin opna einnig dyrnar fyrir KH og Tindastól í titilbaráttuna. Bæði lið eru með 38 stig, en þau mætast á Sauðárkróksvelli á laugardag.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víðir | 20 | +30 | 42 |
| 2 | Reynir S. | 20 | +17 | 39 |
| 3 | KH | 19 | +31 | 38 |
| 4 | Tindastóll | 19 | +15 | 38 |
| 5 | KV | 19 | -1 | 29 |
| 6 | KF | 19 | -4 | 26 |
| 7 | Sindri | 19 | -8 | 23 |
| 8 | Höttur | 19 | -7 | 22 |
| 9 | Augnablik | 19 | -7 | 21 |
| 10 | Ýmir | 19 | -14 | 19 |
| 11 | KÁ | 19 | -25 | 19 |
| 12 | Árbær | 19 | -27 | 8 |