Fotbolti.net
28.08.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

4. deild: Álftanes niðurlægði ÍH með sextán mörkum - Hamar upp um deild

Ari Arian Morina skoraði fimm gegn ÍH

Ari Arian Morina skoraði fimm gegn ÍH

Canon

Mynd: Kári Snorrason

Álftanes ætlar að klára titilbaráttuna í 4. deild karla með stæl en liðið slátraði ÍH, 16-0, í gærkvöldi og færðist skrefi nær deildarmeistaratitlinum. Á sama tíma tryggði Hamar sér sæti í 3. deild.
Álftnesingar tryggðu sér sæti í 3. deild í síðustu umferð en eru greinilega ekki saddir. Þeir tóku ÍH rækilega í karphúsið í kvöld og unnu ótrúlegan 16-0 sigur.

Staðan var 4-0 í hálfleik en heimamenn settu í fluggírinn í þeim síðari og bættu við tólf mörkum. Ar Arian Morina fór fyrir liðinu með fimm mörk og Markús Pálmi Pálmason skoraði þrennu.

Unnar Ari Hansson skoraði tvívegis og þeir Ísak Óli Ólafsson, Hlynur Bjarnason, Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson, Bessi Thor Jónsson og Stephan Briem komust einnig á blað. Síðasta markið var sjálfsmark leikmanns ÍH.

Hamar tryggði sér einnig sæti í 3. deild með öruggum 5-0 sigri gegn botnliði Álafoss. Markahæstu leikmenn liðsins, þeir Guido Rancez, Brynjólfur Þór Eyþórsson og Rodrigo Leonel Depetris, skoruðu allir auk Ólivers Þorkelssonar, en eitt markanna var sjálfsmark.

Titilbaráttan stefnir í að verða æsispennandi. Álftanes er á toppnum með 45 stig en Hamar fylgir fast á eftir með 43 stig. Álftnesingar eiga eftir að mæta Árborg og Elliða en Hamar leikur gegn Elliða og Úlfunum.

Vængir Júpiters 4 - 2 Úlfarnir
0-1 Hektor Orri Ingimarsson ('3 )
1-1 Patrekur Viktor Jónsson ('31 )
1-2 Hektor Orri Ingimarsson ('38 )
2-2 Arnar Ragnars Guðjohnsen ('57 )
3-2 Máni Sævarsson ('68 )
4-2 Númi Steinn Hallgrímsson ('90 )

Álftanes 16 - 0 ÍH
1-0 Ísak Óli Ólafsson ('27 )
2-0 Unnar Ari Hansson ('32 )
3-0 Arian Ari Morina ('39 )
4-0 Arian Ari Morina ('43 )
5-0 Hlynur Bjarnason ('47 )
6-0 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('49 )
7-0 Jesus Omar Moreno Monsalve ('53 , sjálfsmark)
8-0 Bessi Thor Jónsson ('61 )
9-0 Unnar Ari Hansson ('62 )
10-0 Arian Ari Morina ('63 )
11-0 Stephan Briem ('68 )
12-0 Markús Pálmi Pálmason ('74 )
13-0 Markús Pálmi Pálmason ('75 )
14-0 Markús Pálmi Pálmason ('83 )
15-0 Arian Ari Morina ('85 )
16-0 Arian Ari Morina ('86 )

Elliði 2 - 2 Árborg
1-0 Natan Hjaltalín ('21 )
1-1 Magnús Arnar Hafsteinsson ('45 )
2-1 Haukur Máni Heiðarsson ('67 )
2-2 Þorsteinn Daníel Þorsteinsson ('90 )

Hamar 5 - 0 Álafoss
1-0 Guido Rancez ('4 )
2-0 Brynjólfur Þór Eyþórsson ('49 )
3-0 Rodrigo Leonel Depetris ('55 )
4-0 Óliver Þorkelsson ('66 )
5-0 Einar Sæþór Ólason ('90 , sjálfsmark)
Hamar er kominn upp í 3. deild

Hamar er kominn upp í 3. deild

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Álftanes16+6145
2Hamar16+5143
3Árborg16+3233
4Elliði16-322
5Vængir Júpiters16-919
6Úlfarnir16-816
7KFR15-1515
8ÍH16-3711
9Hafnir15-4110
10Álafoss16-318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.