28.08.26 - 08:00
Elvar Geir Magnússon
Arsenal gefst ekki upp á að reyna við Alvarez

Arsenal vill Julian Alvarez.

Mynd: EPA

Fer Leao til Birmingham?

Mynd: EPA

Jesus tvenna hjá Atletico?

Mynd: EPA

Enzo Fernandez vill fara til City.

Mynd: EPA

Arsenal vill Julian Alvarez.

Mynd: EPA

Já eða nei er spurningin. Það er spennandi fótboltahelgi framundan þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Félagaskiptaglugganum verður svo lokað á þriðjudag svo það vantar ekki slúðrið um þessar mundir!
Arsenal neitar að gefast upp í baráttunni um argentínska sóknarmanninn Julian Alvarez (26) sem vill yfirgefa Atletico Madrid. (Mail)
Manchester City hefur horft til sóknartengiliðsins Iliman Ndiaye (26) sem mögulegt skotmark en Everton metur þennan landsliðsmann Senegal á um 80 milljónir punda. (Guardian)
Aston Villa hefur haft beint samband við portúgalska kantmanninn Rafael Leao (27) hjá AC Milan í tilraun til að hafa betur gegn Galatasaray í baráttunni um að fá hann til liðs við sig. (Fabrizio Romano)
Nottingham Forest hefur lagt fram tilboð sem hljóðar upp á allt að 22 milljónir punda í kólumbíska vængbakvörðinn Daniel Munoz (30) hjá Crystal Palace. (Athletic)
Atletico Madrid íhugar að fá brasilísku sóknarmennina Igor Jesus (25) og Gabriel Jesus (29) frá Nottingham Forest og Arsenal. (Fichajes)
Napoli íhugar að fá þýska framherjann Nick Woltemade (24) á lánssamningi frá Newcastle. (Fabrizio Romano)
Manchester United hefur boðist tækifæri til að kaupa enska miðvörðinn Tosin Adarabioyo (28) frá Chelsea, en Michael Carrick leitar leiða til að styrkja vörnina. (GiveMeSport)
Hull City er nálægt samkomulagi við AS Roma um að fá franska framherjann Robinio Vaz (19) til liðs við sig. (Athletic)
Chelsea á í viðræðum um sölu á spænska framherjanum Marc Guiu (20) til Napoli og þær þokast áfram í rétta átt. (Sky Sports)
Argentínski miðjumaðurinn Enzo Fernandez (25) sem leikur með Chelsea bindur enn vonir við að ganga til liðs við Manchester City. (Fabrizio Romano)
Ítalski sóknarmaðurinn Moise Kean, sem leikur með Fiorentina, er sífellt nær því að ganga til liðs við Como í félagaskiptum sem gætu hljóðað upp á um 35 milljónir punda. (Sky Sports Ítalía)
Leeds hefur veitt brasilíska markverðinum Lucas Perri (28) leyfi til að ganga frá félagaskiptum til Torino á láni með kauprétti. (Sky Sports)
Á sama tíma íhugar Leeds að fá markvörðinn Matthieu Epolo (21) frá Standard Liege, en hann er landsliðsmaður Lýðveldisins Kongó. (Get French Football News)