Fotbolti.net
28.08.26 - 12:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arsenal ræðir við Real um Endrick

Arsenal ræðir við Real um Endrick
Canon

Mynd: EPA

Arsenal er samkvæmt heimildum talkSPORT að skoða möguleikann á því að fá Endrick frá Real Madrid. Arsenal hefur rætt við Real um möguleikann.

Jose Mourinho, stjóri Real, segir að Endrick sé ekki til sölu en Arsenal er tilbúið að kanna hvort það sé rétt.

Brasilíski sóknarmaðurinn hefureinnig verið orðaður við Liverpool. Aston Villa er einnig sagt hafa augastað á honum.
Endrick er tvítugur og var á láni hjá Lyon á síðasta tímabili. Hann glímir þessa stundina við meiðsli.

Arsenal hefur einnig verið orðað við Julian Alvarez hjá Atletico en ljóst er að það þarf mjög háa upphæð svo Atletico sé tilbúið að samþykkja tilboð í Argentínumanninn. Arsenal vill fá einn sóknarmann inn fyrir gluggalok.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.